Aðgerðir vegna veirunnar hafa áhrif á afkomu ISI

Kórónuveiran Covid-19 | 16. mars 2020

Aðgerðir vegna veirunnar hafa áhrif á afkomu ISI

Aðgerðir yfirvalda í Bandaríkjunum og í Evrópu til þess að sporna við útbreiðslu kórónuveirunnar munu hafa áhrif á sölu og afkomu Iceland Seafood International á næstu vikum og mánuðum, að því er segir í fréttatilkynningu fyrirtækisins.

Aðgerðir vegna veirunnar hafa áhrif á afkomu ISI

Kórónuveiran Covid-19 | 16. mars 2020

Iceland Seafood International telur útbreiðslu kórónuveirunnar hafa neikvæð áhrif á …
Iceland Seafood International telur útbreiðslu kórónuveirunnar hafa neikvæð áhrif á afkomu fyrirtækisins. Ljósmynd/Iceland Seafood International

Aðgerðir yfirvalda í Bandaríkjunum og í Evrópu til þess að sporna við útbreiðslu kórónuveirunnar munu hafa áhrif á sölu og afkomu Iceland Seafood International á næstu vikum og mánuðum, að því er segir í fréttatilkynningu fyrirtækisins.

Aðgerðir yfirvalda í Bandaríkjunum og í Evrópu til þess að sporna við útbreiðslu kórónuveirunnar munu hafa áhrif á sölu og afkomu Iceland Seafood International á næstu vikum og mánuðum, að því er segir í fréttatilkynningu fyrirtækisins.

Þá hafa hlutabréf fyrirtækisins lækkað um 11,6% í kauphöllinni frá opnun markaða í morgun.

Í tilkynningunni segir að fjárhagslegar afleiðingar aðgerðanna séu háðar þróun mála og tímaramma aðgerðanna. Telur fyrirtækið mestu áhrifin verða á sölu til þjónustugeirans, svo sem hótela og veitingastaða, sérstaklega í Suður-Evrópu. Hins vegar er talið að sala til dagvöruverslana haldi áfram að óbreyttu að svo stöddu.

Líklegt er að góð staða fyrirtækisins hvað varðar sölu í dagvöruverslanir á Írlandi og í Bretlandi verði til þess að draga úr áhrifum á sölu í þjónustugeirann, að mati Iceland Seafood. Kveðst fyrirtækið standa fjárhagslega vel að vígi og vera því fært um að mæta þeim áskorunum sem fylgi ástandinu.

„Til skamms tíma verða áhrifin neikvæð, en eins og staðan er nú er erfitt að spá hver þróunin verður til lengri tíma – hvort þetta mun verða breyting á eftirspurn á afmörkuðu tímabili eða hvort ástandið hafi alvarlegri langtímaáhrif,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is