Fjórir menn sem dæmdir voru fyrir hópnauðgun og morð á Indlandi voru hengdir í dag. Margir fögnuðu aftökunni en mál mannanna vakti heimsathygli og beindi sjónum fólks að kynbundnu ofbeldi á Indlandi.

Jyoti Singh, 23 ára nema í sjúkraþjálfun, var nauðgað af fimm mönnum og unglingspilti eftir að hún þáði far með þeim þegar hún var á heimleið eftir bíó með vini sínum 16. desember 2012. Vinur hennar var laminn í rot en hún dregin aftur í bílinn þar sem henni var ítrekað nauðgað og beitt ofbeldi með járnstöng. Ofbeldið varaði í klukkustund en þá hentu þeir henni og vini hennar út úr bílnum. Hún lést þrettán dögum síðar af völdum áverka sem hún hlaut við árásina. Hún lifði samt nægjanlega lengi til þess að bera kennsl á ódæðismennina.
Bílstjórinn og þrír aðrir voru handteknir 18. desember en hinir tveir voru handteknir viku síðar. Þeir voru ákærðir í febrúar 2013 en mánuði síðar fannst höfuðpaurinn, Ram Singh, látinn í klefa sínum. Yfirvöld segja að um sjálfsvíg hafi verið að ræða en fjölskylda hans telur að hann hafi verið myrtur.
Í ágúst 2013 var unglingurinn fundinn sekur um morð og nauðgun og dæmdur í þriggja ára vistun í unglingafangelsi. Hinir fjórir voru fundnir sekir og dæmdir til dauða í september 2013. Það tók því meira en sex ár að framfylgja dómnum.
Singh var eins og áður sagði nemandi í sjúkraþjálfun og starfaði í símaveri. Fjölskylda hennar hafði flutt úr dreifbýli til borgarinnar þar sem faðir hannar starfaði sem hlaðmaður á flugvelli.
Mennirnir í rútunni: Ram Singh, Mukesh Singh, Vinay Sharma, Akshay Thakur og Pawan Gupta, unnu daglaunavinnu og bjuggu í fátækrahverfi í suðurhluta Delí.
Tæplega 34 þúsund nauðganir voru tilkynntar á Indlandi árið 2018 en talið er að þær séu miklu fleiri.