Þessar vikurnar er verið að sýna sænsku þáttaröðina Ísalög (Thin Ice) í Ríkissjónvarpinu á sunnudagskvöldum. Tökur á þáttunum fóru að miklu leyti fram í Stykkishólmi og voru afar umfangsmiklar. Tónlistarmaðurinn Biggi Hilmars gerir tónlistina í þáttunum sem hann vann að megnið af síðasta ári.

Biggi segist hafa fengið mikið traust frá framleiðendum sem hafi hjálpað mikið. „Ég fékk bara að fljúga,“ segir hann. Í myndskeiðinu er kíkt í vinnuaðstöðuna hjá Bigga úti á Granda og rætt um ferlið en hann hefur um árabil verið afkastamikill tónlistarmaður og var meðal annars í hljómsveitinni Ampop sem margir kannast við.