Hamborgarar eru alltaf vinsælir, sama í hvaða formi þeir eru. Hér er einn gómsætur borgari sem þú munt falla fyrir – jafnvel þótt þú sért ekki á ketómataræðinu.
Hamborgarar eru alltaf vinsælir, sama í hvaða formi þeir eru. Hér er einn gómsætur borgari sem þú munt falla fyrir – jafnvel þótt þú sért ekki á ketómataræðinu.
Gómsætur ketóborgari með guacamole
- 300 g nautahakk
- 2 tsk. worchestershiresósa
- 50 g chorizo
- salt og pipar
- smjör til steikingar
- cheddarostur
Guacamole:
- 1 avocado
- límónusafi
- smávegis af kummíni
- ½ tsk. chiliflögur
- salt og pipar
Annað:
- ¼ rauðlaukur
- salat að eigin vali
- chilimajó
Aðferð:
- Blandið nautahakkinu saman við worchestershiresósuna, salt og pipar.
- Skerið chorizo í bita og blandið saman við nautahakkið.
- Formið kjötið í tvö buff.
- Bræðið smjörið á pönnu og steikið hamborgarana á háum hita. Lækkið hitann og setjið cheddarost ofan á buffin og takið af pönnunni þegar osturinn er bráðnaður.
- Maukið avókadóið saman við límónu, kummín, chiliflögur, salt og pipar. Smakkið til og bætið við hráefnum sem vantar.
- Skerið rauðlaukinn og skolið salatið.
- Berið hamborgarana fram á salati og dreifið guacamole og laufi ofan á. Smá chilimajó yfir allt setur svo punktinn yfir i-ið.
Ketó borgari af allra bestu gerð - gjörið svo vel.
mbl.is/Madbanditten.dk