Stækkun við flugstöðina á Akureyri, stækkun á flughlaði vallarins og malbikun á Egilsstaðaflugvelli eru meðal framkvæmda sem ríkisstjórnin leggur til að hefjist nú þegar samkvæmt aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að bregðast við efnahagslegum áhrifum af útbreiðslu kórónuveirunnar, sem kynntar voru á laugardag.

Frá þessu greinir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, í færslu á Facebook síðdegis. Stefnt er að því að bjóða verkin út í vor og munu þau skapa um 40 ársverk hjá verktökum á svæðinu.
Sigurður Ingi segir mikilvægt að bregðast hratt við en gera jafnframt langtímaáætlanir eins og kostur er í þessari erfiðu stöðu sem samfélagið glímir við. „Halda áfram að byggja upp vegi, flugvelli og hafnir svo samfélagið verði í stakk búið þegar Covid-19 faraldurinn verður um garð genginn. Þrátt fyrir hrun í ferðaþjónustunni er brýn þörf fyrir uppbyggingu innviða og eru flugvellir einn af lykilþáttum fjárfestingarátaksins,“ skrifar ráðherrann.
Uppbygging Akureyrarflugvallar var ekki í fimm ára samgönguáætlun sem kynnt var í haust og sætti það mikilli gagnrýni fyrir norðan. Sigurður Ingi sagði á þeim tíma að fjármagn til uppbyggingar flugvallarins væri ekki í augsýn.
Samkvæmt tillögum ríkisstjórnarinnar sem kynntar voru um helgina er áformað að verja milli 500 til 600 milljónum í ár til undirbúnings verkanna þriggja.
Sigurður Ingi segir annað átak hjá ríkisstjórninni í undirbúningi sem tekur við á árunum 2021-2023 og mun flýting þessara framkvæmda sem og annarra samgönguframkvæmda birtast þar. „Gerum það sem gera þarf og verum skynsöm.“