„Við finnum það á þessum dögum sóttkvíar eða heimavistar hversu mikilvægt tengslanetið okkar er. Skyndilega verða samskipti við börn, systkini, ættingja og vini dagleg. Allir vilja vita hvernig heilsufarið er, hvort viðkomandi haldi sig ekki örugglega heima ef hann er einkennalaus og hvort heimavistin sé nokkuð að fara með geðheilsuna,“ segir Guðrún Bergmann í sínum nýjasta pistli á Smartlandi:

Boð um aðstoð koma víða að og allir sýna umhyggju og ástúð.
TENGSLANETIÐ
Fólk sem er á flakki erlendis er hvatt til að koma heim til Íslands vegna þess að hér er tengslanetið, fjölskyldan, vinirnir og heilbrigðiskerfið okkar. Það er einmitt tengslanetið sem er svo mikilvægt að geta tengt sig við á álagstímum.
Dagsdaglega þurfum við kannski ekki mikið að nota þetta tengslanet, en þegar þörf er á því er gott að vita að það virkar.
Tengslanetið er net sem hefur verið hnýtt í gegnum árin og stækkað og orðið sterkara með fleiri möskvum. Net af fólki sem er til staðar fyrir þig og þú fyrir það, þótt þið hafið kannski ekki haft reglulega svo mikið samband, þá eru tengingarnar enn til staðar. Tengslanetið er því sennilega eitt mikilvægasta net lífsins.
HEIMAVISTIN GETUR NÝST VEL
Það er svo ótal margt sem hægt er að gera í heimavistinni. Gott er að halda ákveðinni reglu á lífinu, þótt ekki sé farið út í vinnu klukkan átta eða níu á morgnana. Hér eru nokkrar hugmyndir að því hvernig gera má það.
Tryggðu að hver heimavistardagur sé gefandi, hvernig sem þú velur að verja honum.