Leikfimikóngurinn snýr aftur á veirutímum

Leiðir til að lifa af | 10. apríl 2020

Leikfimikóngurinn snýr aftur á veirutímum

Leikfimikennarinn og leikarinn Richard Simmons er snúinn aftur á youtuberás sína með brakandi ferskar leikfimiæfingar. 

Leikfimikóngurinn snýr aftur á veirutímum

Leiðir til að lifa af | 10. apríl 2020

Leikfimikóngurinn Richard Simmons er mættur aftur.
Leikfimikóngurinn Richard Simmons er mættur aftur. mbl

Leikfimikennarinn og leikarinn Richard Simmons er snúinn aftur á youtuberás sína með brakandi ferskar leikfimiæfingar. 

Leikfimikennarinn og leikarinn Richard Simmons er snúinn aftur á youtuberás sína með brakandi ferskar leikfimiæfingar. 

Simmons var gríðarlega vinsæll leikfimikennari hér á árum áður en lítið hefur heyrst frá honum síðustu árin. Hann settist í helgan stein árið 2014 og hefur ekki sést opinberlega síðan þá.

Nú þegar allar líkamsrætkarstöðvar eru lokaðar víða um heim hefur Simmons svarað kallinu um fjölbreyttar æfingar til að gera heima. Æfingarnar í nýjasta myndbandi hans eru án efa í hans stíl og eins og að fara í tímavél aftur til ársins 1985.

Ef þig vantar eitthvað ferskt til að gera heima í stofu mælum við með að þú skellir þér í litríkan spandexgalla og setjir Simmons á skjáinn.

mbl.is