Fyrirtæki í sjávarútvegi dragi kröfu til baka

Makríldómar Hæstaréttar | 14. apríl 2020

Fyrirtæki í sjávarútvegi dragi kröfu til baka

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir það vekja reiði að sjávarútvegsfyrirtæki geri 10 milljarða skaðabótakröfu vegna makrílkvóta, sem þau telji sig hafa verið hlunnfarin um. 

Fyrirtæki í sjávarútvegi dragi kröfu til baka

Makríldómar Hæstaréttar | 14. apríl 2020

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir það vekja reiði að sjávarútvegsfyrirtæki geri 10 milljarða skaðabótakröfu vegna makrílkvóta, sem þau telji sig hafa verið hlunnfarin um. 

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir það vekja reiði að sjávarútvegsfyrirtæki geri 10 milljarða skaðabótakröfu vegna makrílkvóta, sem þau telji sig hafa verið hlunnfarin um. 

Sjö út­gerðarfé­lög hafa krafið ís­lenska ríkið um skaðabæt­ur vegna fjár­tjóns sem þau telja sig hafa orðið fyr­ir vegna út­hlut­un­ar mak­ríl­kvóta á ár­un­um 2011 til 2018. Sam­tals nema kröf­urn­ar um 10,2 millj­örðum króna auk þess sem kraf­ist er hæstu mögu­legu vaxta.

„Þetta er ekki góð leið til að vekja samhug á þessum tímum,“ sagði Katrín í ræðustól á Alþingi í dag, á sama tíma og almenningur og fyrirtæki hefðu almennt sýnt mikla samstöðu í baráttunni við veiruna. Hún sagði að þótt hún teldi málstað ríkissjóðs vera góðan þá ættu fyrirtækin að íhuga að draga þessa kröfu til baka.

Undir þetta tók Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.„Við munum taka til fullra varna í deilunni,“ sagði Bjarni. „Ef svo ólíklega vill til að við töpum þá er alveg skýrt að reikningurinn verður ekki sendur skattgreiðendum. Hann mun koma frá greininni.“

mbl.is