Ofurfyrirsætan Irina Shayk og Hollywood-leikarinn Bradley Cooper eru í góðu sambandi þrátt fyrir að ár sé liðið síðan þau hættu saman. Shayk sást á dögunum verja næstum því fjórum klukkutímum heima hjá barnsföður sínum að því fram kemur á vef Daily Mail.

Shayk var mynduð við komuna en þá var hún með svarta andlitsgrímu. Hún var hins vegar búin að taka grímuna af sér þegar hún var komin á tröppurnar hjá sínum fyrrverandi. Fyrirsætan sást meðal annars taka á móti matarsendingu í brúnum poka og er líklegt að parið fyrrverandi hafi pantað sér mat saman.
Stjörnurnar búa bæði í New York-borg og eiga saman þriggja ára gamla dóttur. Þau eru því líklega ekki byrjuð saman aftur. Líklega er það dóttir þeirra sem sameinar þau en foreldrahlutverkið er í forgangi hjá parinu fyrrverandi.