Victoria Beckham, fatahönnuður og fyrrverandi kryddpía, græddi töluvert á því þegar Kryddpíurnar eða Spice Girls komu saman í fyrra. Beckham sem hefur snúið sér að tísku er talin hafa grætt eina milljón punda eða um 170 milljónir íslenskra króna á endurkomu Kryddpíanna að því fram kemur á vef The Sun.

Kryddpíurnar sem voru afar vinsælar á tíunda áratug síðustu aldar komu aftur saman í fyrra og fóru á tónleikaferðalag. Þær voru þó bara fjórar þar sem frú Beckham ákvað að fara ekki með. Hún fær þó einn fimmta af hinum ýmsu tekjum sem tengjast Kryddpíuvörumerkinu. Það sama átti við í fyrra þrátt fyrir að þær Mel C, Geri, Emma og Mel B hafi tekið á sig alla vinnuna ef svo má að orði komast.
Í fyrra fékk Beckham aðeins 700 þúsund pund eða tæpar 120 milljónir borgaðar frá tískumerki sínu sem stendur völtum fótum eins og staðan er í dag. Félagið Spice Girls Limited græddi 4,5 milljónir punda í fyrra. Árið áður, þegar sveitin var enn í dvala, voru tekjurnar aðeins 124 þúsund pund.