Hönnunarhúsið Vorhús birti á heimasíðu sinni, þjóðlega brauðtertu í tilefni dagsins – en kakan kemur frá landsliðsmeistaranum Fanneyju Dóru Sigurjónsdóttur.

Vorhús fékk Fanneyju með sér í lið í að útbúa einstaka brauðtertu með þjóðlegu ívafi í tilefni af 17. júní. Efniviðinn sótti hún að mestu í íslenska náttúru – reyktan lax, saltaða sítrónu, bleikjutartar, silungahrogn og kerfill prýða þessa stórglæsilegu þjóhátíðartertu sem eflaust hefur slegið í gegn hjá þeim sem fengu að smakka.
Fanney Dóra er meðlimur í hinu frábæra kokkalandsliði okkar Íslendinga, en hún er einnig mikill aðdáandi brauðtertunnar sem hefur aldrei verið vinsælli en einmitt núna.