Efnislega er töluvert eftir

Efnislega töluvert eftir af umræðunni

Bergþór Ólason, varaformaður þingflokks Miðflokksins, segir að svör Sigurðar Inga Jóhannssonar samgöngumálaráðherra, að vinna við undirbúning samgönguframkvæmda muni frestast ef ekki náist að samþykkja samgönguáætlun og frumvörp tengd henni fyrir þinglok, komi honum ekki á óvart.

Efnislega töluvert eftir af umræðunni

Samgönguáætlun 2020 til 2034 | 22. júní 2020

Bergþór Ólason segir að svör samgöngumálaráðherra komi honum ekki á …
Bergþór Ólason segir að svör samgöngumálaráðherra komi honum ekki á óvart. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bergþór Ólason, vara­formaður þing­flokks Miðflokks­ins, seg­ir að svör Sig­urðar Inga Jó­hanns­son­ar sam­göngu­málaráðherra, að vinna við und­ir­bún­ing sam­göngu­fram­kvæmda muni frest­ast ef ekki ná­ist að samþykkja sam­göngu­áætlun og frum­vörp tengd henni fyr­ir þinglok, komi hon­um ekki á óvart.

Bergþór Ólason, vara­formaður þing­flokks Miðflokks­ins, seg­ir að svör Sig­urðar Inga Jó­hanns­son­ar sam­göngu­málaráðherra, að vinna við und­ir­bún­ing sam­göngu­fram­kvæmda muni frest­ast ef ekki ná­ist að samþykkja sam­göngu­áætlun og frum­vörp tengd henni fyr­ir þinglok, komi hon­um ekki á óvart.

„Það ligg­ur fyr­ir í þegar samþykktri áætl­un sem er í gildi og fjár­auka­laga­frum­varpi sem þegar er búið að samþykkja að það er fjár­streymi til þess­ara verk­efna og trygg­ir að þau tefjast ekki þótt þetta mál klárist ekki núna,“ seg­ir Bergþór í sam­tali við mbl.is.

Bergþór seg­ir svör sam­göngu­málaráðherra óskýr og að hann hafi ekki enn þá fengið á hreint hvaða verk­efni myndu raun­veru­lega skaðast ef ekki næðist að samþykkja sam­göngu­áætlun fyr­ir þinglok. Hann seg­ist telja það raun­hæft að hægt verði að klára umræðuna um sam­göngu­áætlun áður en þingið klár­ast, en að nokkuð eigi eft­ir að ræða.

„Ég er sjálf­ur bara rétt að kom­ast inn í efnið, þannig að efn­is­lega er tölu­vert eft­ir af umræðunni,“ seg­ir Bergþór.

Umræða um málþóf „póli­tískt leik­rit“

Þing­menn Miðflokks­ins hafa verið áber­andi í umræðum um sam­göngu­áætlun, sem hef­ur staðið yfir í þing­inu síðan fyr­ir helgi. Hafa þeir verið sakaðir um málþóf, og þing­flokks­for­menn stjórn­ar­flokka sagt þá halda þing­inu í gísl­ingu. Bergþór gef­ur þó lítið fyr­ir þá umræðu.

„Það hef­ur ekki farið mik­ill tími fyr­ir­fram­skipu­lagðra verka þings­ins í umræðu um málið. Umræðan hef­ur átt sér stað utan hefðbund­ins þing­tíma. Þannig að þessi umræða um að við séum að halda þing­inu í gísl­ingu og að þetta sé orðin mjög mik­il umræða sem tef­ur fram­gang annarra mála er póli­tískt leik­rit,“ seg­ir Bergþór.

mbl.is