Lesendur mbl.is þurfa ekki lengur að fikra sig áfram í myrkrinu því nú er júlíspá Siggu Kling mætt á vefinn. Sigga hefur rýnt í stjörnurnar og spilin og veit hvað er framundan í júlí.
Lesendur mbl.is þurfa ekki lengur að fikra sig áfram í myrkrinu því nú er júlíspá Siggu Kling mætt á vefinn. Sigga hefur rýnt í stjörnurnar og spilin og veit hvað er framundan í júlí.
Lesendur mbl.is þurfa ekki lengur að fikra sig áfram í myrkrinu því nú er júlíspá Siggu Kling mætt á vefinn. Sigga hefur rýnt í stjörnurnar og spilin og veit hvað er framundan í júlí.
Júlí er alltaf spennandi mánuður í lífi flestra og býður upp á mörg tækifæri sem er tilvalið að grípa, eða ekki! Sigga Kling leiðir okkur áfram inn í ljósið.
Elsku Ljónið mitt,
himingeimurinn og veröldin öll er á hraðferð til að leysa úr öllu sem þú þarft að láta gerast. Þér finnst alltaf að þú þurfir að bjarga og redda öllu, svo að hugsanirnar eru á sömu fleygiferð og alheimurinn. Eftir því sem þér finnst þú geta tengt þig meira frið og ró geturðu sleppt því að vera í spennugírnum. Þannig sérðu að þú þarft ekki alltaf að vera hoppandi glaður til að sjá að hamingjan heldur í höndina á þér.
Elsku Sporðdrekinn minn,
það er ekki alltaf auðvelt að tilheyra þessu merki. Það eru alls konar hvirfilbyljir sem hafa mætt þér og þú hefur komist í gegnum þá alla. Þú ert sterkari en nokkurri manneskju datt í hug og þegar þú lendir í aðstæðum sem einkennast af streitu og ósamræmi missirðu orku.
Elsku Vogin mín,
það er margt að gerast í kringum þig, alls engin lognmolla því þú þrífst ekki í slíku. Þú nærð að klára svo margt og sérð líka milljón önnur verkefni sem þú þarft líka að klára.
Elsku Bogmaðurinn minn,
þú hefur svo mikinn sjarma og býrð til svo fullkomin augnablik. Svo þú verður að velja mótleikarana þína af alúð og samviskusemi. Annars verður allt vitlaust og þú dregur þig niður á það plan sem mótleikarar þínir eru á.
Elsku hjartans Krabbinn minn,
það er mikill titringur í tilfinningalífinu þínu svo gefðu dramanu ekki meira að borða. Líf þitt er fólgið í því sem þú hugsar og talar, svo hafðu þann viljastyrk að draga að þér kraftaverkin. Settu meiri trú í það að veröldin sé að vinna með þér og það sé til lausn á vandanum.
Elsku bjartsýni, skemmtilegi Tvíburinn minn,
þú ert svo fljótur að kippa þér inn í rétta gírinn að þó að fyrir augnabliki hafir þú verið í bakkgírnum manstu það ekki lengur. Og svo sannarlega ferðu með flæðinu og framkvæmir það sem þú ætlar þér. Það kemur þér svo sérstaklega á óvart hverju þú nennir því það hafa verið svo miklar breytingar í sálinni þinni og á þínum karakter. Það er mjög mikilvægt að þú stoppir aðeins og sjáir þetta vera að gerast.
Elsku Vatnsberinn minn,
þú ert að taka svo mikla ábyrgð á öllu og það getur verið stressandi. En í raun vil ég segja þér að þetta er svo spennandi. Það er margt að breytast, en þú getur ekki bæði haldið og sleppt. Þú gætir þurft að taka leiðinlegar ákvarðanir til þess að hreinsa andrúmsloftið og það verður mikill léttir eftir það.
Elsku Fiskurinn minn,
þú ert að fara í gegnum skapandi og skemmtilega tíma. Þú ert í svo miklu jafnvægi og hefur náð svo góðum tökum á að finna það skemmtilega í lífinu út og skora það erfiða á hólm. Þú finnur og sérð að þú getur treyst bæði sjálfum þér og öðrum betur en þú hefur gert. Þú getur slakað meira á en áður og slappað af. Þú getur meira að segja leyft þér að sitja í farþegasætinu og öðrum að stjórna og sleppt því að vera alltaf í símanum.
Elsku Hrúturinn minn,
þú hefur þá orku í hendi þér að geta breytt svo mörgu og nýtt þér svo vel þær aðstæður sem eru í kringum þig. Það er ekki langt síðan allt stóð svolítið fast og þér fannst þú ekki hreyfast lönd né strönd.Núna hittirðu ótrúlegasta fólk á hinum ýmsu mannamótum, eða á göngustígum niðri í fjöru. Hvort sem það er ertu að kalla til þín hamingjuna.
Elsku Nautið mitt,
þetta dásemdar dýrðartímabil sem þú ert að sveima inn í gefur þér jafnvægi og öðruvísi upphaf. Þú finnur fyrir svo mikilli ánægju yfir hlutum sem þú hefur ekki einu sinni tekið eftir áður.
Elsku Steingeitin mín,
lífið er bara þannig að það er alltaf eitthvert annað fjall sem þú getur klifið. Þú hefur verið að klífa erfitt og mikilfenglegt fjall í lífi þínu og ná merkilegum markmiðum fram. En svo er eins og þú springir á limminu þegar þú kemur niður af fjallinu því þú gleymir að sjá hversu merkilegt það var að ná toppnum.