Kínversk stjórnvöld hafa gagnrýnt bandarísk stjórnvöld harðlega og segjast munu hefna sín eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti skrifaði undir tilskipun þess efnis að Hong Kong muni framvegis ekki fá neina sérmeðferð frá bandarískum stjórnvöldum.

Hong Kong hefur verið undanskilið refsiaðgerðum og tollum sem Kína hefur mátt sæta. Það breytist nú vegna nýrra öryggislaga sem tóku gildi í Hong Kong í maí.
Lögin kveða á um bann við uppreisnaráróðri, landráði og sjálfstæðisumleitunum sjálfstjórnarhéraðsins Hong Kong. Þá er rétturinn til þess að mótmæla verulega skertur með lögunum.
Fyrir utan aðgerðir kínverskra stjórnvalda í Hong Kong hefur Trump gagnrýnt Kína harðlega vegna kórónuveirufaraldursins, sem á upptök sín í kínversku stórborginni Wuhan.