Fyrirsætan Nicole Poturalski komst í heimspressuna í ágúst fyrir að slá sér upp með Brad Pitt. Fólk skiptist í fylkingar þegar kemur að konunum í lífi leikarans og var Poturalski spurð að því á dögunum af hverju hún hataði Angelinu Jolie.

„Hamingjusamt fólk hatar ekki,“ skrifaði Poturalski við mynd af sér í appelsínugulum kjól. Hún fékk þó að finna fyrir því í athugasemdunum við myndina.
„Ef svo er, af hverju hatið þið Brad Angelinu? Fylgdu því sem þú predikar stelpa,“ skrifaði instagramnotandi við myndina. Poturalski lét athugasemdina ekki slá sig út af laginu. „Hata ekki neinn,“ svaraði hún.
Ferðalag Pitts og Poturalski til Frakklands í lok ágúst vakti mikla athygli en Pitt fór með nýju kærustuna í kastalann sem þau Angelina Jolie keyptu árið 2011. Hjónin, sem enn standa í skilnaði, giftu sig einmitt í kastalanum árið 2014.