Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, hófst 24. september og verða nokkrar af helstu myndum hátíðarinnar sýndar í Bíó Paradís sem opnað var fyrir helgi. Fjórar af myndum hátíðarinnar verða svo eingöngu sýndar þar. Nokkrar íslenskar heimildar- og stuttmyndir verða frumsýndar á hátíðinni og verður hver mynd aðeins sýnd einu sinni, að því er fram kemur í tilkynningu.

Meðal meðal þeirra erlendu kvikmynda sem sýndar verða í kvikmyndahúsinu er Nomadland, þ.e. Hirðingjaland, eftir kínverska leikstjórans Chloe Zhao sem nýverið hlaut aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum en hún verður sýnd í kvöld. Einnig má nefna 200 metra, kvikmynd leikstjórans Ameen Nayfeh sem þegar hefur verið tilnefnd til verðlauna og hlotið mikið lof.
Íslenskar heimildarmyndir sem frumsýndar verða í Bíó Paradís eru Hatrið, Sirkusstjórinn, Húsmæðraskólinn og Á móti straumnum og fyrrnefndar fjórar myndir sem aðeins verða sýndar í Bíó Paradís eru Druk eftir leikstjórann Thomas Vinterberg, Notturno eftir Gianfranco Rosi, Wildland eftir Jeanette Nordahl og Peninsula eftir Yeon Sang-ho.
Í tilkynningu frá RIFF kemur fram að aðeins verði ein sýning á hverri mynd og að sætaframbð verði takmarkað og sóttvörnum fylgt. Frekari upplýsingar um myndirnar má fá á vef hátíðarinnar, riff.is.