Friends-stjarnan Jennifer Aniston hefur íhugað að hætta í leiklistinni. Aniston á farsælan feril að baki og leikur í hverjum smellinum á fætur öðrum. Það var ekki fyrr en nýlega sem hún íhugaði að snúa sér að einhverju öðru.

„Ég verð að segja að á síðustu tveimur árum hefur mér dottið það í hug,“ sagði Aniston hreinskilin í hlaðvarpsþætti að því er fram kemur á vef E!. Hún var spurð hvort hún hefði hugsað sér að hætta í bransanum.
Hún hugsaði um það áður en hún lék í sjónvarpsþáttunum The Morning Show. Hún tæmdi tankinn í verkefni sem hún lék í stuttu áður. „Ég veit ekki hvort þetta sé það sem ég hef áhuga á,“ hugsaði Aniston með sér þarna.
Aniston er með plan b. Ef hún væri ekki í leiklist væri hún líklega innanhússhönnuður. „Ég elska það. Þar er liggur hamingjan mín.“
Sem betur fer fyrir aðdáendur Aniston er hún ekki alveg hætt í leiklistinni. Hún er til dæmis að fara að vinna fljótlega aftur með Adam Sandler sem er í miklu uppáhaldi hjá henni. Þau Sandler hafa þekkst síðan þau voru 19 ára. „Ég elska að vera í tökum með Sandler. Just Go With It var mjög skemmtileg.“