Hollywoodleikarinn Brad Pitt er hættur með þýsku fyrirsætunni Nicole Poturalski að því er fram kemur í erlendum slúðurmiðlum. Ástarsamband Pitts og Poturalski vakti athygli í lok sumars þegar þau fóru saman í frí til Frakklands.

Heimildarmaður Page Six heldur því fram að sambandið hafi ekki verið eins alvarlegt og greint var frá í fjölmiðlum. Parið á að hafa hætt saman fyrir nokkrum vikum að því er fram kemur á vef E!.
Fréttir um sambandsslit Pitts og Poturalski koma aðeins nokkrum dögum eftir að þýska fyrirsætan sást með eiginmanni sínum í Berlín. Poturalski sem er 27 ára er gift eldri manni og á með honum barn en var sögð vera í opnu hjónabandi.