Melania Trump forsetafrú Bandaríkjanna mætti á kjörstað í Flórída í gær í sumarlegum kjól frá ítalska hátískumerkinu Gucci. Frú Trump kaus í Flórída og því kemur sumarlegi kjóllinn hennar ekki á óvart.

Við kjólinn var forsetafrúin í ljósum hælaskóm frá Christian Louboutin og með tösku frá Hermes. Það er nóg til af peningum hjá Trump-hjónunum en á vef Daily Mail kemur fram að kjóll frú Trump kosti 4.500 bandaríkjadali eða um 630 þúsund íslenskar krónur. Taskan er síðan metin á 17 þúsund bandaríkjadali eða um 2,4 milljónir íslenskra króna.
Forsetafrúin brosti til ljósmyndara en hún var ekki með grímu þegar hún mætti á kjörstað. Frú Trump greindist með kórónuveiruna fyrir rúmum mánuði á sama tíma og eiginmaður hennar.