Tökur á Friends hefjast í mars

Friends | 13. nóvember 2020

Tökur á Friends hefjast í mars

Tökur á endurkomuþætti af þáttunum vinsælu Friends eiga að hefjast í mars næstkomandi. Upphaflega stóð til að þátturinn yrði tekinn upp í ágúst síðastliðnum en vegna kórónuveirunnar var því frestað. 

Tökur á Friends hefjast í mars

Friends | 13. nóvember 2020

Þátturinn af Friends mun verða tekinn upp í mars.
Þátturinn af Friends mun verða tekinn upp í mars.

Tökur á endurkomuþætti af þáttunum vinsælu Friends eiga að hefjast í mars næstkomandi. Upphaflega stóð til að þátturinn yrði tekinn upp í ágúst síðastliðnum en vegna kórónuveirunnar var því frestað. 

Tökur á endurkomuþætti af þáttunum vinsælu Friends eiga að hefjast í mars næstkomandi. Upphaflega stóð til að þátturinn yrði tekinn upp í ágúst síðastliðnum en vegna kórónuveirunnar var því frestað. 

Einn leikaranna, Matthew Perry, greindi frá þessu í færslu á twitter í gær. „Lítur út fyrir að það verði mikið að gera á næsta ári. Og þannig viljum við hafa það,“ skrifaði Perry í færslu sinni. 

Í þættinum munu Perry, Lisa Kudrow, Jennifer Aniston, Matt LeBlanc, Courteney Cox og David Schwimmer sameinast á ný. 

mbl.is