Flotinn skilaði 5% minni afla í október

Samdráttur í sjávarútvegi | 16. nóvember 2020

Flotinn skilaði 5% minni afla í október

Afli íslenskra fiskiskipa var 86.774 tonn í október 2020 sem er 5% minni afli en í október 2019, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands. Þar segir að samdráttinn sé einkum að rekja til uppsjávaraflans en hann dróst saman um 12% og nam síldaraflinn í október 36 þúsund tonnum sem er 27% minna en í sama mánuði í fyrra.

Heildarafli fiskiskipanna minnkaði um 5% í október þessa árs miðað …
Heildarafli fiskiskipanna minnkaði um 5% í október þessa árs miðað við sama mánuð í fyrra. Þá dróst aflaverðmætið saman um 5,2% á sama tíma. mbl.is/Alfons Finnsson

Afli íslenskra fiskiskipa var 86.774 tonn í október 2020 sem er 5% minni afli en í október 2019, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands. Þar segir að samdráttinn sé einkum að rekja til uppsjávaraflans en hann dróst saman um 12% og nam síldaraflinn í október 36 þúsund tonnum sem er 27% minna en í sama mánuði í fyrra.

Afli íslenskra fiskiskipa var 86.774 tonn í október 2020 sem er 5% minni afli en í október 2019, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands. Þar segir að samdráttinn sé einkum að rekja til uppsjávaraflans en hann dróst saman um 12% og nam síldaraflinn í október 36 þúsund tonnum sem er 27% minna en í sama mánuði í fyrra.

Botnfiskafli var tæp 40 þúsund tonn sem er 3% aukning samanborið við október 2019. Af botnfisktegundum nam þorskaflinn tæpum 24 þúsund tonnum sem er svipaður afli og á fyrra ári en tæpum sex þúsund tonnum var landað af ýsu sem er 33% aukning miðað við október 2019.

Þá var aflaverðmæti í október, metið á föstu verðlagi, 5,2% minna en í október 2019.

Á tólf mánaða tímabili, nóvember 2019 til október 2020, nam heildarafli íslenskra fiskiskipa tæplega 1.016 þúsund tonnum sem er 5% minni afli en á sama tímabili ári fyrr. Þá var samdráttur í ufsa 14%, í ýsu 23%, 13% í kolmunna og 10% í síld. Á móti kemur að á tímabilinu jókst þorskaflinn  um 1%, makrílaflinn um 18% og flatfiskaflinn um 1%.

mbl.is