Í janúar var úkraínsk farþegaþota með 176 farþegum skotin niður af íranska hernum skömmu eftir flugtak í Teheran. Tvö flugskeyti hæfðu vélina sem dró úr trúverðugleika á skýringum hersins sem hélt fram að vélin hefði verið skotin niður fyrir mistök. Greining blaðamanna NYT sýnir skeytin lenda á vélinni en einnig þegar hún hrapaði til jarðar skammt frá þorpinu Khalaj Abad með þeim afleiðingum að allir 176 um borð létu lífið.

Atvikið átti sér stað skömmu eftir að íranski hershöfðinginn Qasem Soleimani var ráðinn af dögum af Bandaríkjamönnum í drónaárás sem olli miklum titringi á svæðinu. Spennan í samskiptum þjóða í Mið-Austurlöndum nálgaðist svo suðumark eftir að vélinni var grandað, m.a. var Rob Macaire, sendiherra Breta í Teheran, handtekinn á minningarathöfn um þá sem fórust í atvikinu.
Í myndskeiðinu sem fylgir sést vélin á flugi í ljósum logum en einnig er þar að finna upptöku úr öryggismyndavél þar sem brak úr vélinni sést skella á jörðu.
mbl.is mun á næstu dögum birta skýringar af þessu tagi sem New York Times hefur gert fyrir alla mánuði þessa viðburðaríka árs. Kórónuveiran er þar fyrirferðarmikil en önnur stór fréttamál á árinu eru einnig til skoðunar, þar má nefna dauða George Floyds í höndum lögreglunnar í Minneapolis og forsetakosningarnar í Bandaríkjunum.