Á fyrstu stigum faraldurs kórónuveirunnar í Bandaríkjunum átti fólk sem fann fyrir einkennum erfitt með að komast í skimun fyrir veirunni. Þetta var þvert á orð Trumps Bandaríkjaforseta sem lofaði að allir kæmust í skimun. Í fréttaskýringu NYT í meðfylgjandi myndskeiði er farið í saumana á atburðarásinni.

Hinn 6. mars heimsótti Trump CDC, sóttvarnastofnunina í Bandaríkjunum, þar sem verið var að skipuleggja skimanir fyrir kórónuveirunni. Í kjölfarið lýsti forsetinn því yfir að hver sem vildi í Bandaríkjunum ætti kost á að vera skimaður fyrir veirunni. Þremur dögum síðar ítrekaði hann yfirlýsinguna á blaðamannafundi.
Eftir því sem leið á mánuðinn kom í ljós að fólk sem taldi sig veikt af veirunni átti í miklum vandræðum með að finna sjúkrahús eða heilsugæslustöðvar sem buðu upp á skimanir. Sóttvarnastofnunin hafði þróað skimanir síðla í janúar en þær voru einungis í boði fyrir þá sem höfðu ferðast til Kína eða átt samneyti við einhvern sem var sýktur af veirunni.
Bandaríkin eru á meðal þeirra landa sem kórónuveiran hefur leikið hvað verst og dauðsföllin nú orðin um 330 þúsund talsins.
mbl.is mun á milli jóla og nýárs birta skýringar af þessu tagi sem New York Times hefur gert fyrir alla mánuði þessa viðburðaríka árs. Kórónuveiran er þar fyrirferðarmikil en önnur stór fréttamál á árinu eru einnig til skoðunar, þar má nefna dauða George Floyds í höndum lögreglunnar í Minneapolis og forsetakosningarnar í Bandaríkjunum.