8 mínútur og 46 sekúndur

8 mínútur og 46 sekúndur sem breyttu heiminum

Í lok maí komst myndband í dreifingu á netinu þar sem lögreglumaðurinn Derek Chauvin lét þyngd sína hvíla á hálsi George Floyd í 8 mínútur og 46 sekúndur við handtöku. Floyd lét lífið og í kjölfarið hófst ein mesta alda mótmæla seinni tíma í Bandaríkjunum. 

8 mínútur og 46 sekúndur sem breyttu heiminum

Fréttaskýringar New York Times 2020 | 28. desember 2020

Í lok maí komst myndband í dreifingu á netinu þar sem lögreglumaðurinn Derek Chauvin lét þyngd sína hvíla á hálsi George Floyd í 8 mínútur og 46 sekúndur við handtöku. Floyd lét lífið og í kjölfarið hófst ein mesta alda mótmæla seinni tíma í Bandaríkjunum. 

Í lok maí komst myndband í dreifingu á netinu þar sem lögreglumaðurinn Derek Chauvin lét þyngd sína hvíla á hálsi George Floyd í 8 mínútur og 46 sekúndur við handtöku. Floyd lét lífið og í kjölfarið hófst ein mesta alda mótmæla seinni tíma í Bandaríkjunum. 

Hinn 46 ára gamli George Floyd hafði misst vinnuna þegar faraldur kórónuveirunnar skall á og hafði farið til að kaupa sígarettur á heitu mánudagskvöldi í Minneapolis. Til þess hafði hann notað falsaðan 20 dollara seðil. Lögreglan var kölluð til og afleiðingarnar þekkja flestir. Í myndbandinu heyrist Floyd ítrekað kalla: „Ég get ekki andað,“ setning sem átti eftir að verða nokkurs konar slagorð fólks í Bandaríkjunum og um heim allan þar sem ofbeldi lögreglu í Bandaríkjunum gagnvart svörtu fólki var fordæmt.

Black Lives Matter-hreyfingin sem upphaflega byrjaði árið 2013 varð háværari en nokkru sinni fyrr. Ákall fólks var að lækka framlög til lögreglunnar í Bandaríkjunum og nýta fjármunina heldur til að fjárfesta í samfélagi svartra. 

Blaðamenn New York Times rýna í málið í myndskeiðinu sem fylgir og rekja atburðarásina sem leiddi Floyd til dauða ítarlega.

mbl.is mun á milli jóla og ný­árs birta skýr­ing­ar af þessu tagi sem New York Times hef­ur gert fyr­ir alla mánuði þessa viðburðaríka árs. Kór­ónu­veir­an er þar fyr­ir­ferðar­mik­il en önn­ur stór frétta­mál á ár­inu eru einnig til skoðunar líkt og for­seta­kosn­ing­arn­ar í Banda­ríkj­un­um.

mbl.is