Las ekki samninginn vegna sýningar um frelsarann

Brexit | 14. janúar 2021

Las ekki samninginn vegna sýningar um frelsarann

Victoria Prentis, sjávarútvegsráðherra Bretlands, sætir nú mikilli gagnrýni eftir að hafa viðurkennt fyrir nefnd lávarðadeildar breska þingsins að hafa ekki lesið Brexit-samninginn vegna þess að hún hafi verið of upptekin við að undirbúa sýningu um fæðingu frelsarans í tilefni jólanna.

Las ekki samninginn vegna sýningar um frelsarann

Brexit | 14. janúar 2021

Victoria Prentis, sjávarútvegsráðherra Bretlands, viðurkenndi að hún las ekki Brexit-samninginn …
Victoria Prentis, sjávarútvegsráðherra Bretlands, viðurkenndi að hún las ekki Brexit-samninginn þegar hann barst á aðfangadag. Töluverður fjöldi innan breska sjávarútvegsins eru ósáttir við að aflaheimildir Breta verða að miklu leiti í höndum ESB næstu fimm árin. Ljósmynd/UK Parliament

Victoria Prentis, sjávarútvegsráðherra Bretlands, sætir nú mikilli gagnrýni eftir að hafa viðurkennt fyrir nefnd lávarðadeildar breska þingsins að hafa ekki lesið Brexit-samninginn vegna þess að hún hafi verið of upptekin við að undirbúa sýningu um fæðingu frelsarans í tilefni jólanna.

Victoria Prentis, sjávarútvegsráðherra Bretlands, sætir nú mikilli gagnrýni eftir að hafa viðurkennt fyrir nefnd lávarðadeildar breska þingsins að hafa ekki lesið Brexit-samninginn vegna þess að hún hafi verið of upptekin við að undirbúa sýningu um fæðingu frelsarans í tilefni jólanna.

Skoski þjóðarflokkurinn krefst þess nú að ráðherrann segi af sér.

Brexit-samningurinn hefur hlotið gagnrýni sjómanna og útgerða fyrir að veita aðeins brot af þeim veiðiheimildum sem talið er að Bretar eigi rétt á. Til að mynda hafi skipum Evrópusambandsins verið tryggt 80% af ýsukvótanum í Keltahafi næstu fimm árin. Auk þess sem hlutdeild Breta í ufsa í Norðursjó hefur aðeins farið úr 23% í 26%.

Margir sjómenn og útgerðarmenn segja Brexit-samninginn vonbrigði.
Margir sjómenn og útgerðarmenn segja Brexit-samninginn vonbrigði. AFP

„Ég held að samningurinn sé góður fyrir Bretland. Hvað varðar sjávarútveginn verður að segjast að atvinnugreinin dreymdi stóra drauma og satt að segja fengum við ekki allt sem við sóttumst eftir í sumum tilfellum,“ sagði Prentis við þingnefndina.

Spurð hvort hún hafi verið hissa þegar hún sá samninginn aðfangadagskvöld svaraði hún: „Nei, samningurinn kom þegar við vorum öll mjög upptekin á aðfangadagskvöld, í mínu tilfelli að skipuleggja sýningu um fæðingu frelsarans (e. nativity trail).“

Guardian

Evening Standard

The National

Express

mbl.is