Þjóðarmorð Kína á Úígúrum „mjög líklegt“

Úígúrar í Kína | 8. febrúar 2021

Þjóðarmorð Kína á Úígúrum „mjög líklegt“

Það er „mjög líklegt“ að kínversk stjórnvöld hafi framið þjóðarmorð á Úígúrum, samkvæmt sérfræðingi í málefnum þeirra.

Þjóðarmorð Kína á Úígúrum „mjög líklegt“

Úígúrar í Kína | 8. febrúar 2021

Xi Jinping, forseti Kína.
Xi Jinping, forseti Kína. AFP

Það er „mjög líklegt“ að kínversk stjórnvöld hafi framið þjóðarmorð á Úígúrum, samkvæmt sérfræðingi í málefnum þeirra.

Það er „mjög líklegt“ að kínversk stjórnvöld hafi framið þjóðarmorð á Úígúrum, samkvæmt sérfræðingi í málefnum þeirra.

Í nýbirtu sérfræðiáliti hans í Bretlandi kemur fram að sannanir séu fyrir því að ríkið hafi staðið á bak við áætlun um að láta þennan minnihlutahóp múslima í norðvesturhluta Kína hverfa, að sögn BBC

Meðal annars hafi verið reynt að skaða þá Úígúra sem hafa verið í haldi, reynt hafi verið að koma í veg fyrir að konur eignist börn, þar á meðal með þungunarrofi, og að börn hafi verið flutt á brott með valdi. 

Fram kemur einnig í álitinu að líklegt sé að Xi Jinping, forseti Kína, beri sjálfur ábyrgð á glæpum gegn mannkyni. Þar segir að „náin aðkoma Xi Jinping“ í aðförinni gegn Úígúrum geti stutt það að höfðað verði mál gegn honum vegna þjóðarmorðs.

Úígúrar spurðu fregna af ættingjum sínum fyrir utan sendiráð Kína …
Úígúrar spurðu fregna af ættingjum sínum fyrir utan sendiráð Kína í Tyrklandi í desember í fyrra. AFP
mbl.is