Hollywoodstjörnurnar Brad Pitt og Angelina Jolie eru enn í réttarsal tæpum fimm árum eftir að þau tilkynntu skilnað. Elsta barn þeirra, hinn 19 ára gamli Maddox Jolie-Pitt, bar nýlega vitni gegn föður sínum og vill taka nafnið Pitt út úr eftirnafni sínu.

Maddox bar vitni gegn föður sínum í forræðismáli hjónanna sem fullorðinn einstaklingur. Heimildarmaður Us Weekly segir vitnisburð Maddox ekki hafa komið vel út fyrir föður hans.
„Hann notar ekki nafnið Pitt í eftirnafni sínu þegar ekki er um lagaleg skjöl að ræða, hann notar bara Jolie. Maddox vill breyta eftirnafni sínu löglega í Jolie en Angelina segist ekki styðja það.“
Í lok árs 2016 var leikarinn Pitt hreinsaður af öllum grun um ofbeldi gegn Maddox sem þá var 15 ára. Jolie sakaði Pitt um að hafa slegið drenginn í flugvél. Eftir atvikið í flugvélinni tóku Pitt og Jolie ákvörðun um að skilja og hefur mikið ósætti ríkt meðal feðganna. Angelina Jolie er nú sögð tilbúin að reiða fram gögn sem styðja framburð um heimilisofbeldi í skilnaðarmáli sínu við Brad Pitt.