„Kannski er það þess vegna sem ég elska keppni svona mikið. Mér líður þá eins og ofur-mér,“ segir Katrín Tanja Davíðsdóttir sem tvisvar hefur hlotið titilinn Fittest Woman on Earth eða Hraustasta kona heims og situr nú í öðru sæti á þeim heimslista.

Katrín Tanja er ekki bara næsti gestur Loga Bergmanns í viðtalsþáttunum Með Loga heldur líka yngsti gestur hans til þessa en hún er 27 ára gömul.
Þau fara yfir magnaðan feril þessarar ungu konu sem lært hefur að takast á við ýmsar áskoranir í lífinu og nýta sér þær til að ná árangri sem fæst okkar munu nokkurn tíma ná; að verða best í heimi.
Þátturinn kemur í Sjónvarp Símans Premium á fimmtudag og er einnig sýndur í opinni dagskrá kl. 20.00 sama dag.