Tæpum 17 árum eftir að tökum lauk á síðasta Friends-þættinum er tökum lokið á endurkomuþáttum af þáttaröðinni vinsælu. Fregnir BBC herma að lokið hafi verið við að taka upp þættina í síðustu viku.

HBO Max, sem framleiðir þættina, hefur ekki gefið út hvenær þættirnir verða sýndir en talið er að það verði á næstu mánuðum. Upphaflega stóð til að taka þættina upp í ágúst á síðasta ári en heimsfaraldurinn kom í veg fyrir það.
Mikil spenna er fyrir endurkomuþáttunum en allir upphaflegu leikararnir, Matthew Perry, Jennifer Aniston, Courteney Cox, Lisa Kudrow, Matt LeBlanc og David Schwimmer munu snúa aftur í þáttunum.
Um helgina birti Perry mynd úr sminkstólnum á Instagram og sagðist hafa verið að hitta alla vini sína aftur eftir langan tíma. Myndin virðist þó ekki hafa fengið samþykki framleiðenda og var hún tekin út skömmu seinna.