Íslenskur maður, sem starfar sem lögmaður og hefur gagnrýnt kínversk stjórnvöld með skrifum í Morgunblaðið, var kallaður á fund í utanríkisráðuneytinu í morgun þar sem honum var tilkynnt að hann væri kominn á svartan lista stjórnvalda í Kína, einn Íslendinga.

Þetta staðfesti Sveinn H. Guðmarsson, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, í samtali við mbl.is.
Litið er á svartan lista sem þvingunaraðgerð og er maðurinn til að mynda í farbanni til Kína. Þá eru fjármunir fólks í Kína á svörtum lista frystir, eigi þeir slíka.
Gunnari Snorra Gunnarssyni, sendiherra Íslands í Peking, var tilkynnt um ákvörðun kínverskra stjórnvalda í gær.
Sveinn segir að íslensk stjórnvöld hafi mótmælt aðgerðinni, bæði hafi sendiherra Íslands í Peking komið á framfæri mótmælum við fulltrúa utanríkisráðuneytis Kína þegar honum var greint frá ákvörðuninni. Einnig hafi sendiherra Kína komið á fund í utanríkisráðuneytið þar sem mótmælum var komið á framfæri við hann.
„Þeim var jafnframt bent á að það ríkir fullt málfrelsi hér á Íslandi. Þessi einstaklingur ber ekki neina ábyrgð á íslenskum stjórnarathöfnum sem stjórnvöld í Kína kunna að vera ósátt við,“ segir Sveinn.
Samkvæmt heimildum mbl.is stendur til að Ísland taki þátt, ásamt fjölmörgum vestrænum ríkjum, í þvingunaraðgerðum gegn kínverskum lögaðilum og einstaklingum sem bera ábyrgð á mannréttindabrotum í Xinjiang-héraði gegn úígúr-múslimum.
Líklegt er að aðgerðir kínverskra stjórnvalda séu viðbragð við tilvonandi þátttöku Íslands í aðgerðunum. Reglugerð þar sem þvingunaraðgerðirnar formgerast hefur ekki verið gefin út enn, en aðgerðirnar hafa verið til umræðu bæði í ríkisstjórn Íslands sem og í utanríkismálanefnd Alþingis.
Ísland hefur gagnrýnt framgöngu Kína gagnvart úígúr-múslimum bæði á vettvangi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna og í tvíhliða samskiptum.
Maðurinn sem settur var á svartan lista kínverskra stjórnvalda heitir Jónas Haraldsson. Hann segir í samtali við mbl.is að honum hafi verið tilkynnt að tilefni þessa séu skrif hans í Morgunblaðinu.
Jónas hefur gagnrýnt umgengni við fasteign sem var í eigu kínverska sendiráðsins í skrifum sínum í Morgunblaðið, skrifað um þátt Kína í kórónuveirufaraldrinum og um kínverska ferðamenn.
„Ég er þarna eini Íslendingurinn, eini Íslendingurinn sem Kínverjum finnst þess virði að hrækja á. Ég er auðvitað stoltur af því,“ segir Jónas í samtali við mbl.is.