Engin smit um borð

Kórónuveiran Covid-19 | 26. apríl 2021

Engin smit um borð

Enginn í áhöfn Þórsness greindist jákvæður fyrir Covid-19 og eru því allir um borð lausir úr sóttkví. Þetta staðfestir Margeir Jóhannesson, skipstjóri um borð, sem segir að veikindin sem tilkynnt voru, hafi verið minniháttar. 

Engin smit um borð

Kórónuveiran Covid-19 | 26. apríl 2021

Áhöfnin á Þórsnesinu reyndist ekki smituð af kórónuveirunni.
Áhöfnin á Þórsnesinu reyndist ekki smituð af kórónuveirunni. mbl.is/​Sig­urður Bogi

Enginn í áhöfn Þórsness greindist jákvæður fyrir Covid-19 og eru því allir um borð lausir úr sóttkví. Þetta staðfestir Margeir Jóhannesson, skipstjóri um borð, sem segir að veikindin sem tilkynnt voru, hafi verið minniháttar. 

Enginn í áhöfn Þórsness greindist jákvæður fyrir Covid-19 og eru því allir um borð lausir úr sóttkví. Þetta staðfestir Margeir Jóhannesson, skipstjóri um borð, sem segir að veikindin sem tilkynnt voru, hafi verið minniháttar. 

Stjórn­stöð Land­helg­is­gæsl­unn­ar barst beiðni um aðstoð frá áhöfn skips­ins í há­deg­inu í gær.

Síðar um daginn tilkynnti skipstjórinn að nokkrir skipverjar fyndu fyrir einkennum sem svipar til veirueinkenna. Því var mikillar varúðar gætt við björgunaraðgerðir og fór áhöfnin í sóttkví við komu til hafnar, um klukkan þrjú í nótt.

Áhöfnin fór svo í skimun snemma í morgun og fékk niðurstöðurnar rétt í þessu, allar neikvæðar. Þeir eru því allir lausir úr sóttkví.

Margeir segir nú sé að fá menn um borð til að gera við vélina.

mbl.is