Vöðvatröllið Arnold Schwarzenegger varð afi í ágúst í fyrra þegar dóttir hans, rithöfundurinn Katherine Schwarzenegger, eignaðist dótturina Lylu með leikaranum Chris Pratt. Tortímandinn er ánægður í afahlutverkinu en leyfir dóttur sinni að skipta á bleyjum.

Hinn 73 ára gamli Schwarzenegger var spurður hvort hann tæki að sér að passa og skipta á bleyjum í þætti spjallþáttastjórnandans Jimmys Kimmels á dögunum.
„Ég gerði þetta allt þegar ég var með börn. Þegar börnin mín voru lítil tók ég þátt í því og það var mjög skemmtilegt. En ég hef aldrei skipt um bleyju á Lylu,“ sagði vöðvatröllið.
Nýbakaði afinn segir að dóttir hans verði mjög stressuð þegar hann reynir að halda á afastelpunni sinni. „Hættu nú Katherine, ég hef haldið á mörgum börn. Ég veit nákvæmlega hvað ég er að gera. Ég er sérfræðingur,“ segir afinn við dóttur sína sem verður samt mjög stressuð. Schwarzenegger segir það líklega eðlilegt.
Smáhestar Schwarzeneggers, Lulu og Wiskey, hafa vakið mikla athygli í heimsfaraldrinum en vöðvatröllið er duglegt að birta myndir af þeim inni á heimili sínu. Afastelpan er búin að fara á bak á þeim báðum þrátt fyrir að vera aðeins átta mánaða.