Ráðgjöf á rækju við Snæfellsnes 393 tonn

Rækjuveiðar | 29. apríl 2021

Hafrannsóknarstofnun hefur gefið úr ráðgjöf á leyfilegum afla rækju við Snæfellsnes frá 1. maí 2021 til 15. mars 2022. Ráðgjöfin hljóðar upp á að ekki verði veidd meiri en 393 tonn. 

Fullur poki af Rækju losaður í kassan.
Fullur poki af Rækju losaður í kassan. Ljósmynd/Helgi Mar

Hafrannsóknarstofnun hefur gefið úr ráðgjöf á leyfilegum afla rækju við Snæfellsnes frá 1. maí 2021 til 15. mars 2022. Ráðgjöfin hljóðar upp á að ekki verði veidd meiri en 393 tonn. 

Hafrannsóknarstofnun hefur gefið úr ráðgjöf á leyfilegum afla rækju við Snæfellsnes frá 1. maí 2021 til 15. mars 2022. Ráðgjöfin hljóðar upp á að ekki verði veidd meiri en 393 tonn. 

Fram kemur á vef Hafrannsóknarstofnunar að ástand rækju við Snæfellsnes hafi ekki verið kannað með stofnstærðarmælingu í ár. 

Þar segir að stofnvísitala hefur sveiflast í kringum meðaltal árin 2008 til 2016 en frá árinu 2017 hefur hún verið töluvert lægri en árin á undan og eru þær lægstu frá árinu 2005.

Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar byggir á ráðgjöf fiskveiðiársins 2020/2021 en vegna óvissu um ástand stofnsins er hún lækkuð um 20%.

Þannig ráðleggur Hafrannsóknarstofnun í samræmi við varúðarsjónarmið. 

Lesa má nánar um ráðgjöfina hér.

mbl.is