Listakonan Kristín Avon Gunnarsdóttir er búin að finna ástina. Kristín er komin í samband með Stefáni Atla Agnarssyni, sjómanni á Guðmundi í Nesi RE13. DV greindi fyrst frá.
Listakonan Kristín Avon Gunnarsdóttir er búin að finna ástina. Kristín er komin í samband með Stefáni Atla Agnarssyni, sjómanni á Guðmundi í Nesi RE13. DV greindi fyrst frá.
Kristín og Stefán fóru saman í Jarðböðin við Mývatn um helgina og setti Kristín inn mynd af þeim í story á Instagram. Dóttir Kristínar, Aríel Avon var með í för.
Stefán Atli er búsettur á Akureyri og á tvö börn úr fyrra sambandi.
Smartland óskar þeim innilega til hamingju!