Aðdáendur hinna geysivinsælu þátta Friends hafa lengi beðið eftir yfirvofandi endurkomuþætti. Að því er segir á BBC mun þátturinn líta dagsins ljós 27. maí á streymisveitunni HBO Max.
Aðdáendur hinna geysivinsælu þátta Friends hafa lengi beðið eftir yfirvofandi endurkomuþætti. Að því er segir á BBC mun þátturinn líta dagsins ljós 27. maí á streymisveitunni HBO Max.
Mikil seinkun var á útgáfudeginum vegna Covid-19 og gekk erfiðlega að ná öllum leikarahópnum saman til að taka upp þáttinn. Upphaflega átti þátturinn að koma út í maí 2020.
Allir upphaflegu leikararnir, Matthew Perry, Jennifer Aniston, Courteney Cox, Lisa Kudrow, Matt LeBlanc og David Schwimmer munu snúa aftur í þættinum. Auk þess munu leikararnir Reese Witherspoon og Tom Selleck birtast í þættinum en þau fóru með stór hlutverk í upphaflegu þáttaröðinni. Lady Gaga og Justin Bieber mun einnig bregða fyrir á skjánum.
Í frétt á vef CNN eru aðdáendur þó varaðir við að um sé að ræða endurkomu en ekki endurkomuþátt. Þátturinn er því ekki fyrirframskrifaður.
Fyrr í dag kom út stikla fyrir þáttinn en þar sjást leikararnir sex ganga í burt við hæga útgáfu af þemalagi þáttarins: I‘ll be there for you.