Natan Dagur söng lagið All I Want með írsku hljómsveitinni Kodaline er hann steig á svið í kvöld í norska Voice. Undanúrslit keppninnar fara nú fram.

Þegar hefur verið opnað fyrir netkosningu á vefsíðu TV2, sjónvarpsstöðvarinnar sem framleiðir þættina.
Sem fyrr getur hver sem er kosið á tv2.no. Hver og einn getur kosið þrisvar.
Sex keppendur eru eftir í keppninni, og munu neðstu tveir keppendur detta út í þessari umferð keppninnar. Fjórir stigahæstu keppendurnir fara áfram í úrslitakvöldið sem verður í beinni útsendingu í Noregi 28. maí.
Samkvæmt veðbönkum í Noregi er Natani spáð þriðja sæti og því góður möguleiki á að hann komist áfram, með góðum stuðningi frá Íslandi kannski alla leið til sigurs.
Hér má hlusta á lagið sem Natan mun syngja í upprunalegri útgáfu: