Fyrrverandi landsliðsmaðurinn Rúrik Gíslason sigraði í úrslitaþætti Let's Dance í Þýskalandi í kvöld. Frá þessu er meðal annars greint í þýskum miðlum.

Rúrik dansaði ásamt Renötu Lusin tangó, jive og svokallaðan frjálsan stíl í kvöld en í síðasta dansinum var Rúrik klæddur sem Þór þrumuguð. Parið fékk samtals 89 stig af 90 mögulegum frá dómurum.
Rúrik hefur átt góðu gengi að fagna í keppninni undanfarna mánuði og hefur mikið farið fyrir umfjöllun um Rúrik í þýskum fjölmiðlum.