Nýtt íslenskt serum úr íslenskum þorski

Snyrtibuddan | 1. júní 2021

Nýtt íslenskt serum úr íslenskum þorski

Íslenska andlitsserumið OH MY COD! (OMC!) var að koma á markað en um er að ræða öfluga blöndu af ensímum og  kollageni. Serumið er unnið úr þorski en í því er líka hýalúronsýra. 

Nýtt íslenskt serum úr íslenskum þorski

Snyrtibuddan | 1. júní 2021

Saga Garðarsdóttir er andlit nýja serumsins frá Feel Iceland, OH …
Saga Garðarsdóttir er andlit nýja serumsins frá Feel Iceland, OH MY COD. Berið 2-3 dropa á hreina húð. Sýnið varkárni þegar borið er í kringum augnsvæðið. Serumið er ofnæmisfrítt, án olíu, paraben-og ilmefna.

Íslenska andlitsserumið OH MY COD! (OMC!) var að koma á markað en um er að ræða öfluga blöndu af ensímum og  kollageni. Serumið er unnið úr þorski en í því er líka hýalúronsýra. 

Íslenska andlitsserumið OH MY COD! (OMC!) var að koma á markað en um er að ræða öfluga blöndu af ensímum og  kollageni. Serumið er unnið úr þorski en í því er líka hýalúronsýra. 

„Húðin er stöðugt að endurnýja sig og byrjar ferlið í neðstu lögum húðarinnar þar sem frumur margfaldast og færast svo á yfirborðið. Ensím sem kallast Trypsin er fjarlægt úr þorskinum og notað í OMC! serumið. Trypsin eru ensím sem líkaminn framleiðir sjálfur og spilar stórt hlutverk í endurnýjunarferli húðarinnar með því að fjarlægja dauðar frumur í efsta húðlagi og í kjölfarið örva endurnýjun húðarinnar. Þegar þorskensímin komast í snertingu við líkamshita verða þau mjög virk, þar sem þau eru hitanæm. Með því að bera þau á húðina hjálpa þau til við endurnýjun með því að brjóta niður eldri húðfrumur sem eykur teygjanleika og stuðlar að sléttari húð,“ segir Hrönn Margrét Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Feel Iceland sem framleiðir serumið. 

Hún segir að hýalúronsýran og kollagenið starfi vel saman og gefi húðinni aukinn raka ásamt því að mýkja hana, styrkja og draga úr fínum línum.  

OH MY COD serumið er framleitt og þróað á Íslandi …
OH MY COD serumið er framleitt og þróað á Íslandi og er fyrir andlit og háls.   Serumið hentar öllum húðgerðum og inniheldur einungis 9 innihaldsefni.
mbl.is