Leikarinn Matthew Perry úr Vinum er hættur með unnustu sinni, Molly Hurwitz. Perry greindi frá þessu í tilkynningu til fjölmiðla. Parið trúlofaði sig í lok síðasta árs eftir rúmlega tveggja ára samband.

„Stundum ganga hlutirnir bara ekki upp og það gerðist núna,“ sagði Perry að því er fram kemur á vef People. „Ég óska Molly alls hins besta.“
Perry er 51 árs en Hurwitz 29 ára. Þau byrjuðu að hittast árið 2018 og trúlofuðu sig í nóvember í fyrra. „Ég ákvað að trúlofa mig. Það var heppni að í þetta skiptið var kærastan mín besta konan á allri jörðinni,“ sagði Perry um trúlofunina á sínum tíma.
Fréttirnar af sambandsslitunum koma tæpri viku eftir að endurfundaþáttur af Vinum var sýndur í Bandaríkjunum.