Tekið vel á móti Berki í Neskaupstað

Endurnýjun skipaflotans | 3. júní 2021

Tekið vel á móti Berki í Neskaupstað

Nýr Börkur, nýsmíði Síldarvinnslunnar, kom í fyrsta sinn til heimahafnar í Neskaupstað í hádeginu í dag. Var hann í fylgd Beitis NK og sigldu skipin um Norðfjörð og þeyttu skipsflauturnar. Veður var með besta móti og fylgdist fjöldi fólks með komu skipsins. Þá var hægt að fylgjast með komu skipsins í beinni útsendingu.

Tekið vel á móti Berki í Neskaupstað

Endurnýjun skipaflotans | 3. júní 2021

Nýr Börkur kom til Norðfjarðar í dag.
Nýr Börkur kom til Norðfjarðar í dag. Ljósmynd/Síldarvinnslan/Þorgeir

Nýr Börkur, nýsmíði Síldarvinnslunnar, kom í fyrsta sinn til heimahafnar í Neskaupstað í hádeginu í dag. Var hann í fylgd Beitis NK og sigldu skipin um Norðfjörð og þeyttu skipsflauturnar. Veður var með besta móti og fylgdist fjöldi fólks með komu skipsins. Þá var hægt að fylgjast með komu skipsins í beinni útsendingu.

Nýr Börkur, nýsmíði Síldarvinnslunnar, kom í fyrsta sinn til heimahafnar í Neskaupstað í hádeginu í dag. Var hann í fylgd Beitis NK og sigldu skipin um Norðfjörð og þeyttu skipsflauturnar. Veður var með besta móti og fylgdist fjöldi fólks með komu skipsins. Þá var hægt að fylgjast með komu skipsins í beinni útsendingu.

„Það eru ávallt tímamót þegar tekið er á móti nýju skipi, en síðasta nýsmiði sem Síldarvinnslan festi kaup á var rækjufrystitogarinn Blængur sem kom í fyrsta sinn til hafnar í Neskaupstað árið 1993,“ segir á vef Síldarvinnslunnar.

Skipið mun formlega fá nafn sitt við hátíðlega athöfn á sjómannadaginn 6. júní.

mbl.is