Brasilíska fyrirsætan Nathalia Soliani og „kærasta“ fyrrverandi landsliðsmanns Íslands í knattspyrnu og nú skemmtikrafts Rúriks Gíslasonar, hefur sakað hann um framhjáhald á samfélagsmiðlinum Instagram.

Undanfarna daga hefur Soliani verið alein á ferðalagi án Rúriks, en hún er stödd í Mexíkó, nánar tiltekið á Maya-riveríunni á Júkatanskaga. Hún kom þangað fyrir viku og birti þá ljósmynd á Instagram sem hún tók úr flugvélinni á leiðinni til Mexíkó. Með myndinni lætur hún eftirfarandi texta fylgja: „Þegar hið óvænta leiðir til gæfuríkustu blessunarinnar.“
Hún hefur nýtt tímann vel samkvæmt Instagram og farið í skoðunarferðir á Júkatanskaga þar sem hún skoðaði píramída sem voru byggðir af Mayafólkinu og synti í „cenote“ helli þar sem hægt er að synda í ferskvatni Júkatanskaga. Einnig hefur hún notið baðstrandanna á riveríunni sem teljast með þeim tærustu í heimi.