Þýskir fjölmiðlar hafa fjallað um meint ástarsamband knattspyrnumannsins Rúriks Gíslasonar og leikkonunnar Valentinu Pahde. Fréttirnar koma eftir að kærasta, fyrirsætan Nathalia Soliani, fjallaði um meint framhjáhald hans á Instagram. Stjarna Rúriks skín skært í Þýskalandi eftir að hann vann sigur í þýska dansþættinum Let's Dance í maí.

Á vefnum Promiflash fjallað um hvort erfiðleikar séu í paradís Rúriks og Soliani og hvort þau séu hætt saman. Einnig er bent á að Soliani sé hætt að fylgja Rúrik á Instagram. Rúrik var í viðtali á vefmiðlinum í mars og virtist þá allt vera í lagi hjá parinu. Sagði Rúrik að kærasta sín væri ánægð með dansfélaga hans og hún horfði á þáttinn í sjónvarpinu.
Þýski miðillinn Bild fjallar um að Rúriks sé í Grikklandi með Pahde sem lenti í öðru sæti í dansþættinum. Á vefnum RTL er líka fjallað um sambandsslit Rúriks og Soliani og ástæðan talin vera myndir af Rúrik og Pahde. Á þýska vefmiðlinum VIP er fjallað um sögu Soliani á Instagram í gær þar sem hún sagði Rúrik hafa haldið fram hjá sér.