Eliza Reid, forsetafrú Íslands, fór í bólusetningu í dag. Eliza birti mynd af sér úr Laugardalnum á samfélagsmiðlum. Eliza var í svörtum stuttermabol og með grímu í hinseginfánalitunum þegar hún fór í bólusetninguna. Fjölmargir voru boðaðir í bólusetningu með bóluefni Johnson & Johnson, Janssen, í dag.

„Gleðilegan mánudag,“ skrifaði Eliza bæði á íslensku og ensku. „Svo þakklát að vera búin að fá þessa hér,“ skrifaði hún og birti mynd af sprautulyndistákni. „Kærar þakkir til alls heilbrigðisstarfsfólks!“
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og eiginmaður Elizu, fékk fyrsta skammt af bóluefni AstraZeneca í byrjun maí. Hann mætti á staðinn í stuttermabol með teikningu af stuðningsmanni íslenska landsliðsins.