Hér er á ferðinni hin goðsagnakennda T-bone steik sem nú fæst í Hagkaup. T-bone er bragðmikil og skemmtileg steik sem gaman er að borða enda bragðast hún sérdeilis vel.
Stórbrotin T-bone steik með heimagerðri bernaise
T-bone steikur
SPG-krydd
Bakaðar kartöflur
Sveppir með paprikuostafyllingu
Piccolo-tómatar
Original BBQ sauce frá Saus.Guru
Aðferð:
Kryddið steikurnar áður en þær fara á grillið og penslið þær þar með BBQ-sósu.
Setjið grænmetið á grillið og grillið uns tilbúið.
Látið kjötið hvíla í 10 mínútur eftir að það er tekið af grillinu.
Berið fram með bernaise-sósunni.
Bernaise í blandara
300 g smjör ósaltað – brætt
3 eggjarauður
3 msk. fáfnisgras (estragon)
1/4 tsk. cayenne-pipar
1 tsk. salt
½ tsk. pipar
1 tsk. limesafi
1 msk. bernaise-essens
Aðferð:
Bræðið smjörið. Þeytið eggjarauðurnar vel í blandaranum. Hellið smjörinu mjög varlega saman við. Bætið essensinum og lime-safanum við. Kryddið eftir smekk og hrærið saman.
Athugið að smjörið þarf að kólna aðeins og ná sirka stofuhita áður en því er hellt saman við.
Ef hita á sósuna upp þarf að gera það hægt svo hún skilji sig ekki.
Allir grilla er samstarfsverkefni mbl og Hagkaups