32 sagt upp störfum í Stykkishólmi

32 sagt upp störfum í Stykkishólmi

Öllum 32 starfsmönnum fiskvinnslufyrirtækisins Agustson ehf. í Stykkishólmi var sagt upp störfum frá og með mánaðamótum júní/júlí. Starfsmönnum var tilkynnt um ákvörðunina á starfsmannafundi í gær, segir Sigurður Ágústsson, einn eigenda fyrirtækisins, í samtali við 200 mílur.

32 sagt upp störfum í Stykkishólmi

Samdráttur í sjávarútvegi | 1. júlí 2021

Öllum starfsmönnum Agustsson ehf. hefur verið sagt upp.
Öllum starfsmönnum Agustsson ehf. hefur verið sagt upp. mbl.is/Sigurður Bogi

Öllum 32 starfsmönnum fiskvinnslufyrirtækisins Agustson ehf. í Stykkishólmi var sagt upp störfum frá og með mánaðamótum júní/júlí. Starfsmönnum var tilkynnt um ákvörðunina á starfsmannafundi í gær, segir Sigurður Ágústsson, einn eigenda fyrirtækisins, í samtali við 200 mílur.

Öllum 32 starfsmönnum fiskvinnslufyrirtækisins Agustson ehf. í Stykkishólmi var sagt upp störfum frá og með mánaðamótum júní/júlí. Starfsmönnum var tilkynnt um ákvörðunina á starfsmannafundi í gær, segir Sigurður Ágústsson, einn eigenda fyrirtækisins, í samtali við 200 mílur.

Uppsagnirnar komu til vegna viðvarandi rekstrarerfiðleika og tapreksturs. Þá segir í tilkynningu vegna málsins að við taki „krefjandi endurskipulagningarferli með það að markmiði að tryggja sjálfbæran rekstur til lengri tíma“. Stefnt sé að því að halda úti rekstri en umsvifin verði smærri.

Ákvörðunin um að segja upp starfsfólkinu er sögð „óumflýjanleg miðað við núverandi rekstrarumhverfi þar sem smærri sjávarútvegsfyrirtæki hafa átt undir högg að sækja“. Vísað er til hækkandi rekstrarkostnaðar sem ekki hefur tekist að mæta með stærðarhagkvæmni auk þess sem boðaður 13% samdráttur í útgefnum aflaheimildum í þorski á næsta fiskveiðiári hafi komið niður á áætlaðri afkomu fyrirtækisins.

Samkvæmt ársreikningi fyrirtækisins fyrir árið 2019 skilaði fyrirtækið 92,6 milljóna króna tapi og 100,9 milljóna króna tapi 2018.

mbl.is