Dagur og Hallgrímur til starfa hjá Vinnslustöðinni

Vinnslustöðin | 1. júlí 2021

Dagur og Hallgrímur til starfa hjá Vinnslustöðinni

Dagur Arnarson og Hallgrímur Þórðarson, nýútskrifaðir sjávarútvegsfræðingar frá Háskólanum á Akureyri, hafa verið ráðnir til starfa hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum, að því er fram kemur á vef fyrirtækisins.

Dagur og Hallgrímur til starfa hjá Vinnslustöðinni

Vinnslustöðin | 1. júlí 2021

Sjávarútvegsfræðingarnir og Eyjamennirnir Dagur Arnarson og Hallgrímur Þórðarson hafa hafið …
Sjávarútvegsfræðingarnir og Eyjamennirnir Dagur Arnarson og Hallgrímur Þórðarson hafa hafið störf hjá Vinnslustöðinni. Ljósmynd/Samsett

Dagur Arnarson og Hallgrímur Þórðarson, nýútskrifaðir sjávarútvegsfræðingar frá Háskólanum á Akureyri, hafa verið ráðnir til starfa hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum, að því er fram kemur á vef fyrirtækisins.

Dagur Arnarson og Hallgrímur Þórðarson, nýútskrifaðir sjávarútvegsfræðingar frá Háskólanum á Akureyri, hafa verið ráðnir til starfa hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum, að því er fram kemur á vef fyrirtækisins.

Dagur er nýútskrifaður úr sjávarútvegs- og viðskiptafræðum frá Háskólanum á Akureyri. Hann hefur gengið í margvísleg störf í Vinnslustöðinni og Hafnareyri en mun núna aðstoða við stjórnun lifrarniðursuðu hjá Iðunni Seafoods ehf., sem Vinnslustöðin á hlut í.

Hallgrímur nam sjávarútvegsfræðin í fjarnámi frá Eyjum og vann jafnframt á netaverkstæði og á skrifstofu Vinnslustöðvarinnar. Hann mun nú sinna verkefnum á skrifstofum félagsins.

Báðir eiga þeir það sameiginlegt að hafa skilað lokaverkefnum sem tengjast Vinnslustöðinni. „Ég velti því fyrir mér í lokaverkefninu hvort hagkvæmt væri að bæta við pökkunarvél í uppsjávarhúsi Vinnslustöðvarinnar. Verkefnið varðaði bæði sjávarútvegsfræði og í viðskiptafræði í náminu. Þetta þarf að kanna enn frekar og vonandi verður það gert,“ segir Dagur um lokaverkefni sitt. Hann segir jafnframt Vinnslustöðina alltaf hafa verið fyrsta kosst er varðar vinnustað.

„Lokaverkefnið mitt fjallaði um hvort hagkvæmara væri fyrir Vinnslustöðina að framleiða krapa um borð í skipunum sínum frekar en að taka hefðbundinn flöguís með sér að heiman til veiða. Vísbendingar eru um að sú leið sé hagkvæmari en það þarf að fara dýpra í málið og setja rauntölur um kostnað alls staðar inn í dæmið. Sumt varð ég að áætla en áhugi er fyrir því að ég haldi áfram að kanna málið frá öllum hliðum,“ segir Hallgrímur.

mbl.is