Fjögur stærstu dagblöð Norðurlanda minntust aldarafmælis kínverska kommúnistaflokksins með sameiginlegu bréfi ritstjórnanna þar sem fordæmdar eru árásir yfirvalda á fjölmiðlafrelsi í Hong Kong.

„Heimurinn getur ekki lengur staðið aðgerðarlaus á meðan Kína sogar smám saman loftið úr fjölmiðlafrelsi Hong Kong,“ segir í sameiginlegu bréfi Aftenposten í Noregi, Dagens Nyheter í Svíþjóð, Politiken í Danmörku og Helsingin Sanomat í Finnlandi.
Í bréfinu segir einnig að dagblöðin ætli að skrifa meira um ástand mála í Hong Kong á næstunni.
Í júní var fjölmiðlinum Apple Daily lokað en blaðið hefur verið einn af hornsteinum lýðræðisbaráttumanna í Hong Kong undanfarin ár. Stjórnendur blaðsins voru margir handteknir með heimild nýrra öryggislaga sem sett voru í Kína á síðasta ári.
Meðal annars má sjá bréfið á vef Politiken