Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar, segir uppsögn allra 32 starfsmanna fiskvinnslufyrirtæksisins Agustson ehf. sé þungt högg fyrir samfélagið í Stykkishólmi. „Það er auðvitað alltaf þungt fyrir öll samfélög þegar svona atburðir eiga sér stað. Það er öllum ljóst að um var að ræða þungan rekstur í krefjandi samkeppnisumhverfi – í atvinnugrein sem sótt er að úr mörgum áttum samtímis,“ segir Jakob Björgvin.

Starfsmönnum fyrirtækisins var tilkynnt um ákvörðunina um að segja þeim upp frá og me mánaðarmótunum júní/júlí á starfsmannafundi á miðvikudag. Í tilkynningu frá félaginu kom fram að nú taki við „krefjandi endurskipulagningarferli með það að markmiði að tryggja sjálfbæran rekstur til lengri tíma“. Stefnt sé að því að halda úti rekstri en að umsvifin verði smærri.
Jakob Björgvin segir höggið ekki síst þungt í ljósi þess að Agustson ehf. hafi verið með starfsemi í Stykkishólmi frá árinu 1933, í nærri 90 ár, og verið á þeim tíma einn af burðarstólpum atvinnulífsins í Stykkishólmi. „Það er því rótgróið í samfélaginu og menningu bæjarins. Höggið er í samræmi við það.“ Jakob segir það högg vera þyngst fyrir þá starfsmenn sem missa sín störf hjá fyrirtækinu og er hugur hans hjá þeim starfsmönnum.
„Þetta er í raun viðbótarhögg fyrir sjávarútveginn í Stykkishólmi, en bæði í ár og í fyrra hafa grásleppusjómenn og vinnslur í Stykkishólmi liðið fyrir núverandi fyrirkomulag á grásleppuveiðum, en ekki náðist að klára fyrirhugaðar breytingar á fyrirkomulagi grásleppuveiða á Alþingi í vetur,“ segir Jakob Björgvin.
„Hér í Stykkishólmi er hins vegar fyrir sterkt og fjölbreytt atvinnulíf sem drifið er áfram af kraftmiklu fólki, sem kemur til með milda þetta samfélagslega högg. Þá eru jákvæð teikn á lofti í okkar samfélagi, það er uppgangur í atvinnulífinu hér eftir Covid-19 og fjölmörg tækifæri sem liggja fyrir í tengslum við auðlindanýtingu Breiðafjarðar. Við erum því vel í stakk búin til þess að takast á við þessa áskorun,“ segir Jakob Björgvin.