Hagræðing í skipastól Síldarvinnslunnar

Samdráttur í sjávarútvegi | 21. júlí 2021

Hagræðing í skipastól Síldarvinnslunnar

Nokkrar breytingar eru í farvatninu á skipastól Síldarvinnslunnar að því er kemur fram á Facebook-síðu félagsins.

Hagræðing í skipastól Síldarvinnslunnar

Samdráttur í sjávarútvegi | 21. júlí 2021

Börkur eldri, sem verður bráðlega Bjarni Ólafsson, ef allt gegnur …
Börkur eldri, sem verður bráðlega Bjarni Ólafsson, ef allt gegnur upp. mbl.is/Þorgeir

Nokkrar breytingar eru í farvatninu á skipastól Síldarvinnslunnar að því er kemur fram á Facebook-síðu félagsins.

Nokkrar breytingar eru í farvatninu á skipastól Síldarvinnslunnar að því er kemur fram á Facebook-síðu félagsins.

Bergur ehf. í Vestmannaeyjum í eigu Síldarvinnslunnar hefur samþykkt sölu á Bergi VE-44 til Vísis í Grindavík og verður skipið afhent í ágúst. 

Selja ekki aflaheimildir

Bergur VE-44 var seldur án aflaheimilda en hefur í dag að geyma tæp 1.600 þorskígildistonn. 

Þá mun Bergur ehf. kaupa Bergey VE-144 af móðurfélagi sínu Bergi-Hugin ehf. Fram kemur í tilkynningu Síldarvinnslunnar að um sé að ræða hagræðingaraðgerðir vegna skerðinga á aflamarki á komandi fiskveiðiári. 

Þá hefur dótturfélag Síldarvinnslunnar, Runólfur Hallfreðsson ehf., gengið frá sölu á uppsjávarskipinu Bjarna Ólafssyni AK-70 til erlendrar útgerðar. 

Salan er þó háð ákveðnum fyrirvörum af hálfu kaupenda sem munu skýrast innan mánaðar. Ef af verður mun skipið verða afhent nýjum eigendum á haustmánuðum,“ segir í tilkynningunni. 

Gamli Börkur mun hljóta nýtt nafn, Bjarni Ólafsson AK-70, og munu áhöfn hans og aflaheimildir flytjast á milli. 

mbl.is