„Ég var að sjá þetta fyrst núna sjálf. Fyrst fékk ég smá sjokk en er ekki mjög stressuð yfir þessu núna,“ segir Klara Sif Magnúsdóttir, sem hefur atvinnu af því að selja erótískt og klámfengið efni á efnisveitunni OnlyFans, um stefnubreytingu félagsins varðandi klám.

Greint var frá því fyrr í dag á mbl.is að OnlyFans mun hætta að hýsa efni sem flokkast sem klám og mun fyrirtækið því ekki leyfa notendum að birta kynferðislegt efni á síðunni frá og með október.
Hins vegar verður áfram heimilt að birta efni með nekt ef það samrýmist reglum fyrirtækisins.
Klara Sif var tekjuhæsta íslenska klámstjarnan tekjuárið 2020 og var með rúmlega eina 1,1 milljón króna í tekjur miðað við greitt útsvar á síðasta ári samkvæmt Tekjublaði DV sem kom út í gær. Þá er Klara töluvert tekjuhærri en aðrar þekktar klámstjörnur á Íslandi í dag.
Aðspurð segir Klara að gangi stefnubreytingin eftir eins og henni er lýst í fréttaflutningi hafi muni það hafa mikil áhrif á hennar sölu.
Að hversu miklu leyti hefur þú tekjur af klámi annars vegar og af erótískum myndum hins vegar? Yrði þetta mjög mikil stefnubreyting fyrir þig?
„Þetta yrði það nefnilega. Ég ætla að bíða og sjá hvernig þetta verður í október. OnlyFans er að byrja með eitthvað sem heitir OnlyFansTV og það er spurning hvort að klám verði einungis bannað þar inn eða hvernig þetta verður. Mest af minni innkomu kemur af klámi.“
Þá segist Klara hafa mikið meiri tekjur af sölu á efni sem hún framleiðir eftir beiðnum og minni tekjur af áskriftarleiðum sem í boði eru á OnlyFans.
Heldur þú að þú munir leita í aðra miðlun á kláminu þínu?
„Ég hef alveg pælt í því. En ég hef líka pælt í því hvort að ég ætti að gera eitthvað allt annað. Ég ætla bara að sjá hvað mig langar að gera.“